Skilmálar
Notendaskilmálar
Skilaréttur
Ekki er hægt að skila vörum/pöntun frá VM Hönnun nema viðskiptavinur hafi fengið ranga vöru/pöntun.
Ef vara er gölluð er VM hönnun skylt að bjóða kaupanda afslátt, nýja vöru eða afturkölla vöru.
Persónuupplýsingar
Við kaup þá skuldbindur kaupandi sig til að gefa upp réttar persónuupplýsingar. VM Hönnun skuldbindur sig til þess að varðveita þær upplýsingar á tryggan og öruggan hátt. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Sendingar
Allar vörur sem keyptar eru af vefsíðu VM Hönnun eru afgreiddar innan 1-5 daga eftir að pöntun hefur átt sér stað. Hægt er að nálgast vörur á Austurströnd 6, 170 Seltjarnarnes - kaupandi fær sendan tölvupóst þegar varan er tilbúin til afhendingar. Ef óskað er eftir að fá vöruna senda þá bætist við 790/890kr sendingargjald. Sendingar berast með Dropp.
Verð
Verð á vefsíðu VM hönnun er með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um villur. Við kaup reiknast saman allur kostnaður á vörum og/eða sendingu.
Lög um varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar þessir gilda frá og með 23. október 2022